Á föstudag mættust jafnaldrar og vinir úr Grafarvogi á Kópavogsvelli.
Jónatan Guðni Arnarsson er leikmaður Breiðabliks og var í vetur keyptur frá sænska félaginu Norrköping en Rafael Máni Þrastarson er leikmaður ÍA og var keyptur frá Fjölni í vetur.
Þeir léku saman upp yngri flokka Fjölnis og saman með meistaraflokki 2024.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 0 ÍA
Þeir eru fæddir 2007 og komu inn á sem varamenn í leiknum á föstudag.
Þeir skullu harkalega saman á 87. mínútu og lá Jónatan lengur eftir. Rafael Máni fékk að líta gula spjaldið frá Jóhanni Inga Jónssyni, dómara leiksins, fyrir að stíga fyrir Jónatan.