Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - María Eyjólfsdóttir (Þróttur)
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Velkomin í Laugardalinn.
Velkomin í Laugardalinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alvöru gæði í Hörpu.
Alvöru gæði í Hörpu.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Glímar við óþolandi leikmann.
Glímar við óþolandi leikmann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ekkert til að vera hrædd við.
Ekkert til að vera hrædd við.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyja Karín.
Freyja Karín.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Engar legghlífar, ekkert vesen.
Engar legghlífar, ekkert vesen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
María Eva er uppalin hjá Fjölni en hefur leikið með Þrótti frá tímabilinu 2022. Hún hefur einnig leikið með Stjörnunni og Fylki á sínum ferli. Hún á líka að baki níu leiki fyrir unglingalandsliðin.

Á síðasta tímabili spilaði hún 21 leik í Bestu deildinni og skoraði þrjú mörk. Hún er hægri bakvörður sem framlengdi samning sinn við Þrótt í vetur. Í dag sýnir hún á sér hina hliðina.

Fullt nafn: María Eva Eyjólfsdóttir

Gælunafn: Stundum kölluð Mary

Aldur: 28 ára

Hjúskaparstaða: Í sambandi

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: 2011 á móti Tindastól á Króknum, það eina sem ég man er að við unnum leikinn.

Uppáhalds drykkur: Fanta Lemon

Uppáhalds matsölustaður: Gandhi

Uppáhalds tölvuleikur: Spila ekki tölvuleiki

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: White Collar

Uppáhalds tónlistarmaður: Miley Cyrus

Uppáhalds hlaðvarp: Hlusta ekki mikið á hlaðvörp en dett inn á einn og einn Dr. Football.

Uppáhalds samfélagsmiðill: TikTok, þar sem tíminn fuðrar upp.

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fotbolti.net

Fyndnasti Íslendingurinn: Gísli markmannsþjálfari by far, allir sem þekkja hann tengja…

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: “Tu matt saekja pontunina kl:19:24 i Dalbraut 3 Kvedja Domino’s Pizza.”

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Finnst leiðinlegt að segja það, en öllum liðum utan höfuðborgarsvæðisins.

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Svo margar góðar en ef ég þarf að velja eina þá er það Harpa Þorsteins.

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Hef verið með of marga góða, vil ekki gera upp á milli þeirra.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Hulda Hrund

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Lindsey Vonn

Sætasti sigurinn: Sigurinn í fyrra á móti Víking var mjög sætur, 2-1 undir á 90 mínútu og skorum síðan 2 mörk í uppbótartíma.

Mestu vonbrigðin: Að ná ekki öðru sætinu í fyrra.

Uppáhalds lið í enska: Manchester United

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ég væri til í að fá Öglu Maríu, held að markafjöldinn okkar gæti hækkað töluvert.

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Þórdís Nanna

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Kristján Ólafsson

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Freyja Karín Þorvarðardóttir(freyjakarin) og hún er á lausu.

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Ronaldinho

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Það væri ekkert til sem heitir vitlaust innkast.

Uppáhalds staður á Íslandi: Hjalteyri

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Brynja fann ekki legghlífarnar sínar, svo hún klippti óhreinan brúnkukremshanska í tvennt og notaði í stað þeirra. Við spilum í hvítum sokkum þannig þetta kom ekkert alltof vel út.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, skíðum og síðan er alltaf gaman að horfa stórmót í íþróttum.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial Vapor

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Þýsku

Vandræðalegasta augnablik: Alltaf vont að taka vitlaust innkast í leik kv. bakvörður

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Það væri gaman að fá Rooney, Evra og Ronaldo, áhugaverðar týpur og auðvitað United menn.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Sæunn, gott að leita til hennar þar sem hún er alltaf með allt upp á 10.

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi velja Heklu og Ninnu til að taka þátt í Love Island, það væri alvöru steypa.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég get sleikt á mér olnbogann.

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Sæunn, var hrædd við hana fyrst en er síðan yndisleg manneskja.

Hverju laugstu síðast: Að ég get sleikt á mér olnbogann.

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Þegar reiturinn er stoppaður og allar sendar á línuna í hlaup. Þetta er alltaf ákveðinn mood killer.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Akkúrat núna myndi ég spyrja geimfarana í Artemis II hvort þau fóru í alvörunni út í geim.

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Hlakka til að sjá ykkur á vellinum, LIFI!
Slapp
banner
banner
banner