Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 12:00
Kári Snorrason
Sameiningartillögur felldar á Aðalfundi ÍR
Lengjudeildin
Frá upplýsingafundi ÍR um mögulega sameiningu í febrúar.
Frá upplýsingafundi ÍR um mögulega sameiningu í febrúar.
Mynd: Kári Snorrason
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Félagsmenn ÍR felldu tvær sameiningartillögur á Aðalfundi ÍR sem haldinn var á fimmtudaginn í síðustu viku, þann 16. apríl.

Viðræður hafa verið í gangi um að nýtt fótboltafélag myndi bera nafnið Breiðholt og taka þátt í öllum flokkum í karla- og kvennaflokki.

Annars vegar var tillögu Davíðs Snorra Jónassonar, um að hefja viðræður við Leikni um stofnun nýs félags í Breiðholti með mögulega sameiningu í kjölfarið, hafnað.

Þá var tillögu stjórnar knattspyrnudeildar um áframhaldandi heimild til samtals og frekari úrvinnslu áður en ákvörðun verður tekin jafnframt hafnað.

Meistaraflokkar karla hjá Leikni og ÍR leika báðir í Lengjudeildinni. Leiknir hefur ekki sent kvennalið til keppni í meistaraflokki síðan árið 2019, en kvennalið ÍR leikur í 2. deild.

Mikið var rætt um mögulega sameiningu í upphafi árs og efnti fótboltadeild ÍR til upplýsingafundar sem varðaði sameininguna í febrúar. Nú virðist hins vegar möguleikinn á sameiningu vera að fjarlægast.

Tillaga Davíðs Snorra:
Að aðalfundur ÍR sem haldinn er 16.apríl 2026 heimili, með kosningu, knattspyrnudeildar ÍR að ganga til viðræðna við Íþróttafélagið Leikni Reykjavík um stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti, með vinnuheitið Breiðholt.

Jafnframt að aðalfundur ÍR, haldinn 16.apríl 2026, styðji og samþykki með kosningunni niðurstöðu þeirra viðræðna þegar þeim lýkur með vísun í 21.grein laga ÍR og fallist á að knattspyrnudeild ÍR verði lögð niður að beiðni stjórnar knattspyrnudeildar ÍR.

Tillaga stjórnar knattspyrnudeildar ÍR
Stjórn knattspyrnudeildar ÍR leggur til að hún fái áframhaldandi heimild til að vinna að því verkefni sem hófst í haust á seinasta ári (2025), sem felst í því að eiga samtal við Íþróttafélagið Leikni Reykjavík um mögulega stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti, með vinnuheitið Breiðholt.

Jafnframt er lagt til að Aðalstjórn ÍR veiti knattspyrnudeild ÍR heimild til að hefja framangreindar viðræður og lýsi yfir stuðningi við þær niðurstöður sem af þeirri vinnu kunna að leiða, að því tilskildu að meirihluti Aðalstjórnar sé henni fylgjandi.

Fréttin hefur verið uppfærð:
Rangt var farið með tillögu Davíðs Snorra Jónssonar og hefur tillagan verið leiðrétt.
Slapp
banner
banner