Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   sun 19. apríl 2026 22:18
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Gladbach varð af mikilvægum stigum
Leikmenn Gladbach voru ótrúlega nálægt því að halda út
Leikmenn Gladbach voru ótrúlega nálægt því að halda út
Mynd: EPA
Borussia M. 1 - 1 Mainz
1-0 Joe Scally ('7 )
1-1 Nadiem Amiri ('90 , víti)

Borussia Mönchengladbach tapaði tveimur stigum er liðið gerði 1-1 jafntefli við Mainz í 30. umferð þýsku deildarinnar í kvöld.

Joe Scally kom Gladbach í forystu á 7. mínútu með frábæru skoti við vítateigslínuna.

Mainz taldi sig hafa skorað jöfnunarmarkið á 88. mínútu er Nelson Weiper stangaði aukaspyrnu Nadiem Amiri í netið, en markið var tekið af vegna rangstöðu á Weiper.

Seint í uppbótartíma fundu Mainz-menn leið er Amiri féll í teignum og fékk vítaspyrnu. Fyrirliðinn tók ábyrgð á punktinum og skoraði af öryggi í vinstra hornið.

Svekkjandi fyrir Gladbach sem varð þarna af tveimur mikilvægum stigum í fallbaráttunni, en liðið er í 13. sæti með 31 stig, fimm stigum fyrir ofan fallsæti, en Mainz í 10. sæti með 34 stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 33 27 5 1 117 35 +82 86
2 Dortmund 33 21 7 5 68 34 +34 70
3 RB Leipzig 33 20 5 8 65 43 +22 65
4 Stuttgart 33 18 7 8 69 47 +22 61
5 Hoffenheim 33 18 7 8 65 48 +17 61
6 Leverkusen 33 17 7 9 67 46 +21 58
7 Freiburg 33 12 8 13 47 56 -9 44
8 Frankfurt 33 11 10 12 59 63 -4 43
9 Augsburg 33 12 7 14 45 57 -12 43
10 Mainz 33 9 10 14 42 53 -11 37
11 Hamburger 33 9 10 14 39 53 -14 37
12 Union Berlin 33 9 9 15 40 58 -18 36
13 Gladbach 33 8 11 14 38 53 -15 35
14 Köln 33 7 11 15 48 58 -10 32
15 Werder 33 8 8 17 37 58 -21 32
16 Wolfsburg 33 6 8 19 42 68 -26 26
17 Heidenheim 33 6 8 19 41 70 -29 26
18 St. Pauli 33 6 8 19 28 57 -29 26
Slapp
banner