Atalanta og Lazio berjast um sæti í úrslitum ítalska bikarsins klukkan 19:00 í kvöld.
Liðin eru að mætast í annað sinn en fyrri leiknum lauk með 2-2 jafntefli í Róm.
Seinni leikurinn er spilaður í Bergamó en Atalanta lék síðast í úrslitum árið 2024 á meðan Lazio spilaði síðast þar árið 2019 og vann.
Atalanta hefur unnið bikarinn einu sinni en Lazio sjö sinnum. Sigurvegarinn mun mæta Inter í úrslitum.
Leikur dagsins:
19:00 Atalanta - Lazio



