„Við hlökkum til tímabilsins. Hópurinn hefur unnið vel saman og það er mikið hungur til staðar," segir Daniel Badu, þjálfari Vestra um tímabilið sem er framundan. Vestramönnum er spáð sjötta sæti og rétt missa af umspilinu ef spáin rætist.
„Spáin skiptir okkur ekki máli, hún kemur utan frá," bætir Badu við.
„Spáin skiptir okkur ekki máli, hún kemur utan frá," bætir Badu við.
Búið að vera gott
Badu er nú tekinn við liðinu en hann spilaði með og þjálfaði Hörð á Ísafirði síðasta sumar, en félagið er venslalið Vestra. Badu, sem er 39 ára Englendingur, þekkir mjög vel til hjá Vestra, var alls tíu tímabil hjá félaginu sem leikmaður - fyrst hjá BÍ/Bolungarvík og svo Vestra. Hann kom svo inn í þjálfarateymi liðsins 2023 þegar Davíð Smári Lamude tók við liðinu.
„Þetta er búið að vera gott," segir Badu um hvernig það hefur verið að taka við liðinu. „Leikmennirnir hafa verið opnir og skuldbundnir verkefninu."
Jón Þór Hauksson, fyrrum þjálfari Vestra og ÍA, mun aðstoða hann í sumar. „Jón Þór hefur komið að málum af og til, en daglega starfið fer fram innan hópsins hér," segir Badu.
Þjálfari Vestramanna er ánægður með veturinn og stöðuna á hópnum. „Við höfum tekið framförum í því hvernig við viljum spila, en við erum ekki fullmótað lið ennþá. Við höfum gert breytingar sem styrkja hópinn. Það er alltaf hægt að bæta sig, en í heildina er ég sáttur og hópurinn er í góðri stöðu til að keppa."
Frábært tækifæri
Vestri er í þeirri sérstöku stöðu - eftir að hafa orðið bikarmeistari í fyrra - að spila í Lengjudeildinni og í Evrópukeppni. Hvernig líst þjálfaranum á það?
„Það er frábært tækifæri fyrir félagið. Við nálgumst það verkefni eins og alla aðra leiki, með skýrleika og aga," segir Badu.
Hann býst við jafnri og spennandi Lengjudeild, en markmiðið hjá Vestra er að fara inn í hvern leik af krafti í sumar.
„Deildin verður jöfn og krefjandi. Mörg lið geta tekið stig hvert af öðru, þannig að stöðugleiki verður lykilatriði. Markmiðið okkar er að bæta liðið, þróa leikmennina og vera samkeppnishæfir í hverjum leik. Ef við gerum það munu úrslitin fylgja."
Að lokum, einhver skilaboð til stuðningsmanna?
„Við viljum vera lið sem er skýrt í sínum leik og jafnframt lið sem fólk ber virðingu fyrir – bæði fyrir fótboltann og karakterinn," sagði Badu að lokum.



