Norðurstúkan á Villa Park, heimavelli Aston Villa, verður lokuð allt næsta tímabil.
Leikvangurinn tekur núna 42.640 áhorfendur en sá fjöldi lækkar niður í 37 þúsund á næsta tímabili.
Leikvangurinn tekur núna 42.640 áhorfendur en sá fjöldi lækkar niður í 37 þúsund á næsta tímabili.
Það á að endurbyggja stúkuna og mun leikvangurinn taka 50 þúsund áhorfendur þegar því er lokið.
Hluti af uppbyggingunni eru meðal anars nýir klefar sem verða teknir í notkun.
Aston Villa situr í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er í spennandi baráttu um Meistaradeildarsæti.


