Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
Alli Jói: Ekki gleyma að þær eru Íslandsmeistarar
Ian Jeffs: Fannst þetta ekki jafn fyrri hálfleikur
Jón Óli um meiðsli og litla breidd: „Það situr gríðarleg þreyta í leikmönnum“
Edith stefnir á A-landsliðið
Matti Guðmunds svekktur: Vantar betri ákvörðunartökur á síðasta þriðjungi
Ingibjörg Lúcía bjargaði stigi: Ekkert viss um að margir komi hérna og sæki stig
Gylfi: Ætla óska eftir því að Ingibjörg Lúcía fari að skora flottari mörk en þetta
Óskar Smári: Á endanum þegar þú bankar svona fast þá hljóta dyrnar að opnast
Anton Ingi svekktur þrátt fyrir fyrsta stigið
FH svaraði áfallinu með stórsigri: Þessi leikur var fyrir Kötlu
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
   þri 21. apríl 2026 19:42
Brynjar Ingi Erluson
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
Kvenaboltinn
Hulda Björg Hannesdóttir
Hulda Björg Hannesdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Bara mjög vel. Ég er mjög spennt og eins og margir búnir að tala um eru miklar breytingar á deildinni og margt mjög spennandi,“ sagði Hulda Björg Hannesdóttir, fyrirliði Þórs/KA, á kynningarfundi Bestu deildar kvenna í dag, en Akureyringum er spáð 7. sæti deildarinnar.

Þór/KA hafnaði í 7. sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð og segir Hulda að hópurinn hafi verið óánægður með þá niðurstöðu og eru allar í hópnum staðráðnar að gera betur.

„Ég væri klárlega til í að gera það. Við lentum náttúrlega í þessu sæti í fyrra og vorum ekkert sérlega ánægðar með það þannig við erum staðráðnar í að gera það.“

„Hópurinn er klár og rosalega skemmtilegur og fjölbreyttur hópur. Blanda af eldri og reynslu meiri leikmönnum, en líka yngri leikmönnum sem eru líka með góða reynslu í deildinni. Það eru góðir útlendingar og vonandi mörk í henni. Hún sýndi það í leik um daginn og markvörðurinn mjög spennandi líka. Það er mjög margt spennandi,“ sagði hún enn fremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan en þar talar hún um undirbúninginn og margt fleira.
Slapp
banner
banner