Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   þri 21. apríl 2026 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Hringið í okkur ef þið hafið áhuga"
Mynd: EPA
Alessandro Bastoni, varnarmaður Inter, hefur verið orðaður við Barcelona en Piero Ausilio, yfirmaður fótboltamála hjá Inter, er ekki á þeim buxunum að selja hann.

Greint hefur verið frá því að þessi 27 ára gamli varnarmaður sé búinn að ná munnlegu samkomulagi við spænska liðið.

„Bastoni er með samning við Inter og það lítur ekkert út fyrir að hann sé að fara. Við erum ánægðir með hann og erum vissir um að hann muni halda áfram að standa sig," sagði Ausilio.

„Hringið í okkur ef þið hafið áhuga, þeir eru með númerið okkar. Við höfum ekki breytt áætlunum okkar á markaðnum, við munum fresta viðræðum þangað til hlutirnir fara að róast. Við erum með markmið sem við ætlum að ná."


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner