Viktor Bjarki Daðason opnaði markareikninginn með FCK í dönsku úrvalsdeildinni í 4-1 sigri liðsins á Vejle í gær, en þó hann hafi verið að raða inn mörkum í öðrum keppnum þá tók hann drjúgan tíma að gera fyrsta deildarmarkið.
Framarinn skaust fram á sjónarsviðið í byrjun leiktíðar og áður en hann vissi af var hann búinn að bæta met spænska táningsins Lamine Yamal sem hefur verið með bestu leikmönnum heims síðustu árin.
Hann skoraði þrjú mörk í Meistaradeildinni, meðal annars gegn Barcelona á Camp Nou, og svo fjögur mörk í bikarnum, en fyrsta deildarmarkið lét bíða eftir sér og kom ekki fyrr en í þrettánda leik hans.
Viktor, sem er 17 ára gamall, sagði þungu fargi af honum létt.
„Þetta hefur ótrúlega mikla þýðingu fyrir mig. Það tók mig langan tíma að skora fyrsta deildarmarkið, en ég er ótrúlega ánægður með að hafa náð því.“
„Tilfinningin er extra góð þar sem ég hef ekki spilað í síðustu leikjum og þetta hefur auðvitað verið örlítið erfitt líka. Ég spilaði mikið í fyrstu leikjunum, en svo fór ég að fá minni spiltíma. Þannig bara gott að geta skorað,“ sagði Viktor við Viaplay:
Þetta var áttunda mark Viktors í öllum keppnum með FCK á tímabilinu.
Great finish by Dadason
— RyanThomasFootball (@RyanThomasMMA) April 19, 2026
First league goal for Copenhagen
17 years old. One to keep an eye on ???? pic.twitter.com/Lqs9l2hEJN


