Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 10:26
Kári Snorrason
Anton Logi sneri aftur eftir fimm mánaða fjarveru
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Logi Lúðvíksson, leikmaður Breiðabliks, sneri aftur á völlinn á föstudag eftir tæplega fimm mánaða fjarveru vegna meiðsla.

Hann spilaði rúmar fimmtán mínútur á föstudag í 1-0 sigri Breiðabliks gegn ÍA. Anton spilaði síðast keppnisleik þann 27. nóvember gegn Samsunspor í Sambandsdeildinni.

Miðjumaðurinn hefur lengi verið að glíma við meiðsli í öxl og var ákveðið að koma honum í aðgerð í lok síðasta árs. Ásamt því hefur hann átt í vandræðum að stríða í nára.

Fyrir mót var óttast um að hann yrði frá meirihluta sumars en endurkoman hefur tekið styttri tíma en búist var við. Hann var óvænt í hóp í fyrsta leik gegn Víkingi og kom við sögu í síðasta leik.

„Það er frábært fyrir okkur og hann. Þetta er búið að vera þrautaganga hjá honum. Hann er frábær leikmaður og mun nýtast okkur vel,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, á föstudag.


Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Slapp
banner
banner