Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   þri 21. apríl 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Yamal valinn besti ungi íþróttamaður ársins
Mynd: EPA
Lamine Yamal, leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, var kjörinn besti ungi íþróttamaður ársins á Laureus verðlaunahátíðinni í gær.

Þetta var í fyrsta sinn sem þessi verðlaun eru veitt á hátíðinni. Lionel Messi var kjörinn íþróttamaður ársins á hátíðinni 2020 og 2023.

„Ég er mjög ánægður að vera sá fyrsti til að fá þessi verðlaun, ég er stoltur af því," sagði Yamal.

„Maður áttar sig á því að íþróttamaður er ekki bara goðsögn í sinni íþrótt heldur öllum. Messi, sem er fyrir mér besti leikmaður sögunnar ef ekki besti íþróttamaður sögunnar, hann er klárlega einn af þeim."
Slapp
banner
banner