Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
Nenad: Er kominn með afsökun til að bekkja allt liðið
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lárus Orri: Ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í hvað það varðar
Hemmi svekktur: Stóru ákvarðanirnar allar á móti okkur í dag
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Brynjar Björn: Við verðum að nýta færin sem við fáum
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
   þri 21. apríl 2026 20:17
Brynjar Ingi Erluson
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
Kvenaboltinn
Grindavík/Njarðvík er spáð næst neðsta sætinu
Grindavík/Njarðvík er spáð næst neðsta sætinu
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
„Mjög vel og mjög spennt. Hópurinn okkar er sterkur og erum mjög tilbúnar í þetta. Við erum líka spenntar að mæta sterkum hóp hjá Val,“ sagði Sigríður Emma Fanndal Jónsdóttir, fyrirliði nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur, á kynningarfundi Bestu deildar kvenna í dag.

Grindavík/Njarðvík hafnaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar á síðasta ári og er því nýliði í ár.

Þeim hefur gengið vel á undirbúningstímabilinu og er liðið klárt í fyrsta leik gegn Val.

Á kynningarfundi Bestu deildarinnar var liðinu spáð neðsta sæti, en því níunda hér á Fótbolti.net. Það má því segja að þær fari nokkuð pressulaust inn í tímabilið.

Fyrsti leikur er gegn Val á laugardag og er Emma spennt fyrir því að mæta þeim.

„Já, okkur finnst það. Við erum með sterkt lið og spenntar að sjá hvernig okkur mun ganga. Við höfum trú á verkefninu og spenntar að sjá hvað gerist.“

„Markmiðið er bara að vera betri með hverjum leik. Það er bara fínt fyrir okkur,“
sagði Emma, en viðtalið má sjá fyrir ofan þar sem hún ræðir komu Natöshu Anasi, hvaða leikmaður verður efnilegust í deildinni, næsta sem fer út í atvinnumennsku og margt annað.
Slapp
banner
banner