Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   þri 21. apríl 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rólegur yfir áhuga Liverpool og Barcelona
Mynd: EPA
Marco Palestra, varnarmaður Cagliari, kippir sér ekki mikið upp við það að hafa verið orðaður við stórlið að undanförnu.

Palestra er 21 árs gamall hægri bakvörður en hann er á láni hjá Cagliari frá Atalanta. Hann hefur m.a. verið orðaður við Liverpool og Barcelona.

„Ég er bara að hugsa um Cagliari. Aðalatriðið er að halda liðinu uppi. Það er gaman að heyra þessa orðróma og fá athygli frá stórum félögum en við sjáum til hvað gerist í sumar," sagði Palestra.

„Ég þarf að bæta mig aðeins í öllu. Ég hef verið í Serie A í tvö ár og þarf að bæta mikið með liðsfélögunum og þjálfaranum sem hjálpa mér alltaf."

Hann hefur komið við sögu í 32 leikjum og skorað eitt mark fyrir Cagliari sem situr í 16. sæti ítölsku deildarinnar, fimm stigum frá fallsæti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner