Callum Hudson-Odoi, leikmaður Nottingham Forest, hefur leikið sinn síðasta leik á þessu tímabili, en þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni í dag.
Hudson-Odoi kom inn af bekknum í seinni leiknum gegn Porto í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudag en var ekki með gegn Burnley um helgina.
Forest hefur nú tilkynnt að fyrrum Chelsea-maðurinn hafi gengist undir hnífinn vegna meiðsla á fæti og mun ekki snúa aftur fyrr en í sumar.
„Vildi ekki að tímabilið myndi enda með þessum hætti, en aðgerðin gekk vel, en vonandi með vilja og áætlun guðs mun ég mæta sterkari og betri en nokkru sinni fyrr,“ sagði Hudson-Odoi.
Forest er fimm stigum fyrir ofan fallsæti, en liðið mætir Sunderland, Chelsea, Newcastle, Man Utd og Bournemouth í síðustu fimm leikjunum.
Þá mætir liðið einnig Aston Villa í undanúrslitum Evrópudeildarinnar, en fyrri leikurinn er spilaður á fimmtudaginn í næstu viku.



