Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ánægður með útkomu njósnamálsins
Mynd: Middlesbrough
Mynd: Daily Mail
Kim Hellberg þjálfari Middlesbrough er mjög sáttur með útkomu njósnamálsins mikla í umspili Championship deildarinnar.

Middlesbrough var slegið úr leik af Southampton í undanúrslitum umspilsins en Middlesbrough kærði úrslitin eftir að hafa gómað starfsmann á vegum Southampton í ólöglegum njósnaleiðangri.

Rannsókn leiddi í ljós að Tonda Eckert, þjálfari Southampton, væri að stórum hluta ábyrgur fyrir ólöglegum njósnum liðsins í að minnsta kosti þremur leikjum á deildartímabilinu.

   21.05.2026 22:40
Segir Eckert vita um njósnirnar


Middlesbrough vann því málið og var Southampton dæmt úr leik í umspilinu, auk þess að byrja næsta tímabil með fjögur mínusstig. Hellberg fagnar niðurstöðunni.

„Ég finn fyrir miklum létti og gleði, þetta færir mér endurnýjað traust á réttlæti og mannkyninu," sagði Hellberg við BBC.

   13.05.2026 09:30
Stjóri Boro fordæmir skammarlega hegðun - „Brýtur í mér hjartað“


„Rétta leiðin til að ná árangri er að leggja hart að sér, ekki að stunda njósnir. Það er nokkuð augljóst að svona á ekki að mega viðgangast í fótboltaheiminum."
Slapp
banner
banner