Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fös 22. maí 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Hafnaði Chelsea og Arsenal fyrir Barcelona
Raphinha var lykilmaður hjá Leeds í ensku úrvalsdeildinni.
Raphinha var lykilmaður hjá Leeds í ensku úrvalsdeildinni.
Mynd: EPA
Hann hefur skorað 11 mörk í 37 A-landsleikjum.
Hann hefur skorað 11 mörk í 37 A-landsleikjum.
Mynd: EPA
Er í dag algjör lykilmaður í stórveldi Barcelona.
Er í dag algjör lykilmaður í stórveldi Barcelona.
Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Raphinha elskar lífið í Barcelona og er ekki að hugsa um að skipta um félag þrátt fyrir mikinn áhuga frá Sádi-Arabíu.

Raphinha er lykilmaður í feykiöflugu liði Börsunga og hefur komið með beinum hætti að 29 mörkum í 33 keppnisleikjum á meiðslahrjáðu tímabili.

Á síðustu leiktíð kom hann að 60 mörkum í 57 leikjum.

Raphinha er 29 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi. Hann kemur reglulega fram í viðtölum og ítrekar ást sína á Barcelona, liðinu sem hann hefur haldið með frá því í æsku.

Börsungar keyptu hann úr röðum Leeds United sumarið 2022 og hafnaði Raphinha þá tækifærinu til að ganga til liðs við tvö stórveldi úr London.

„Ég var með tilboð frá bláu liði og líka frá rauðu liði úr London, en ég tók bestu ákvörðun ferilsins og valdi Barcelona," segir Raphinha.

„Bláa liðið var búið að ná samkomulagi við Leeds og allt var klappað og klárt fyrir félagaskiptin. Í mínum huga var ég á leið til London þar til ég frétti af áhuga frá Barcelona.

„Það var gríðarleg pressa á mér að skrifa undir hjá bláa liðinu en ég stóð fastur á mínu og lét stjórnina vita að ég vildi fara til Barcelona. Æskudraumur minn var ekki að spila í London, heldur í Barcelona. Ég sagði við þá að ég myndi bíða eftir tilboði frá Barcelona sama hverjar afleiðingarnar yrðu

„Þetta var mjög stressandi tími útaf því að Barca var í slæmri stöðu fjárhagslega og félagið þurfti tíma til að geta jafnað tilboðin frá ensku úrvalsdeildarfélögunum. Ég tók samt ákvörðunina að bíða eftir þeim, þó það hefði getað þýtt að ég myndi missa af félagaskiptum það sumarið.

„Umboðsmaðurinn minn sagði mér að vera þolinmóður en það var erfitt sérstaklega eftir að ég sá himinháu samningstilboðin sem ég var með á borðinu frá London. En um leið og Barcelona hringdi í mig til að staðfesta að þeir gætu lagt fram kauptilboð þá var mér sama um allar tölur. Ég spurði bara: 'Hvar skrifa ég undir?'"


Til gamans má geta að Deco var umboðsmaður Raphinha þegar hann skipti um félag, en Deco starfar í dag sem yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona.

„Frá fyrsta degi sem ég kom til Barcelona hafa verið orðrómar um að ég sé á leið burt frá félaginu. Mér líður eins og það sé mikið af fólki sem vill ekki sjá mig klæðast Barcelona treyjunni en mér er alveg sama. Ég vil vera hérna í mörg ár. Ég er samningsbundinn til 2028 og ef félagið vill fara í viðræður þá er ég opinn fyrir því."
Slapp