Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Réðu þjálfara Eyþórs Martins til Frakklands
Mynd: Motherwell
Mynd: Motherwell
Franska félagið Toulouse er búið að ráða Berthel Askou sem nýjan aðalþjálfara. Hann kemur úr röðum Motherwell sem átti frábært tímabil í skoska boltanum.

Askou stýrði Motherwell í fjórða sæti skosku deildarinnar og hefur orkumikli sóknarboltinn sem liðið spilar hrifið fótboltaunnendur.

Askou er 43 ára Dani sem er ráðinn sem arftaki fyrir Carles Martínez Novell sem hefur verið við stjórnvölinn síðastliðin þrjú ár. Toulouse endaði í tíunda sæti frönsku deildarinnar á nýliðnu tímabili.

Askou naut lífsins hjá Motherwell en fann sig knúinn til að grípa tækifærið að taka við félagsliði í einni af bestu deildum Evrópu.

„Svona tækifæri banka ekki oft á dyrnar hjá manni. Þetta er ákvörðun sem ég varð að taka þó það sé mjög erfitt að kveðja þetta félag," sagði Askou meðal annars.

Eyþór Martin Björgólfsson, sem raðaði inn mörkunum með Umeå í næstefstu deild í Svíþjóð fyrir áramót, var keyptur til Motherwell í janúarglugganum og gaf tvær stoðsendingar í þremur fyrstu leikjum sínum í Skotlandi.

Hann átti svo eftir að skora eitt mark áður en hann meiddist í mars og missti af síðustu mánuðum tímabilsins. Hann skoraði einu sinni og gaf tvær stoðsendingar í níu deildarleikjum.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner