Viktor Bjarki Daðason neyddist til að fara af velli á 37. mínútu vegna meiðsla í umspilsleik FCK og Bröndby um Evrópusæti í gær.
FCK hafði betur í framlengingu og því er ljóst að liðið leiki í Sambandsdeildinni á næsta ári.
FCK hafði betur í framlengingu og því er ljóst að liðið leiki í Sambandsdeildinni á næsta ári.
Liðið fagnaði með stuðningsmönnum eftir leik en í myndbandi sem FCK birti á samfélagsmiðlum mátti sjá Viktor Bjarka styðjast við hækju.
Viktor var valinn í fyrsta sinn í A-landsliðshóp á dögunum er hann var valinn í hópinn sem mætir Japan í æfingaleik þann 31. maí.

