Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
banner
   fös 22. maí 2026 00:16
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Álftanes eina liðið með fullt hús
Mynd: Aðsend
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Þriðja umferð deildartímabilsins í fjórðu deild gekk snuðrulaust fyrir sig í kvöld þegar fimm leikir fóru af stað á sama tíma.

Álftanes er eina liðið sem er með fullt hús stiga og trónir því á toppi deildarinnar eftir að hafa lagt Vængi Júpíters að velli í kvöld.

Álftanes leiddi stærsta hluta leiksins en aðeins með einu marki þar til Bessi Thor Jónsson innsiglaði sigurinn seint í uppbótartíma. Lokatölur 1-3.

Árborg situr í öðru sæti með 7 stig eftir markalaust jafntefli við Úlfana. Hamar og Elliði fylgja þar á eftir með 6 stig eftir sigra á útivelli.

Natan Hjaltalín var aðalmaðurinn í sigri Elliða gegn Álafossi á sama tíma og Genaro Peresutti leiddi Hamar til sigurs í Suðurlandsslag á Hvolsvelli.

Stærsti sigur kvöldsins kom þegar Hafnir steinlágu á heimavelli gegn ÍH, lokatölur 2-8. Kjartan Þór Þórisson setti þrennu í stórsigri Hafnfirðinga.

Vængir Júpiters 1 - 3 Álftanes
0-1 Patrik Thor Pétursson ('3 )
1-1 Aron Páll Símonarson ('11 )
1-2 Ísak Óli Ólafsson ('28 )
1-3 Bessi Thor Jónsson ('93)

Úlfarnir 0 - 0 Árborg

Álafoss 1 - 3 Elliði
1-0 Hjörtur Smári Birkisson ('17 )
1-1 Adam Fijalkowski ('21 )
1-2 Natan Hjaltalín ('49 )
1-3 Natan Hjaltalín ('61 )

KFR 2 - 5 Hamar
0-1 Genaro Peresutti ('8 )
0-2 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('19 )
0-3 Rodrigo Leonel Depetris ('25 )
0-4 Tómas Bjartur Björnsson ('33 )
1-4 Rúnar Þorvaldsson ('35 )
2-4 Helgi Valur Smárason ('51, víti)
2-5 Genaro Peresutti ('53 )

Hafnir 2 - 8 ÍH
0-1 Kjartan Þór Þórisson ('2 )
1-1 Falur Orri Guðmundsson ('3 )
1-2 Kjartan Þór Þórisson ('9 )
1-3 Tómas Hilmarsson ('14 )
1-4 Kjartan Þór Þórisson ('37 )
1-5 Bjarki Þór Þorsteinsson ('45 )
2-5 Anton Freyr Hauks Guðlaugsson ('50 )
2-6 Elmar Rútsson ('70 )
2-7 Tómas Hilmarsson ('87 )
2-8 Dagur Óli Grétarsson ('89 )
Slapp
banner
banner