Sumarnámskeið BATTA, í sumar ætla BATTAR að bjóða iðkendum upp á alvöru fótbolta námskeið þar sem leikmenn bæta sig og fá gæða æfingar hjá reyndum þjálfurum.
Lagt verður áherslu á persónulega þjálfun og að hver og einn fái toppþjálfun. Þjálfunin fer fram í jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi sem eflir tæknilega getu leikmanna ásamt sjálfstrausti.
Í bland við gæða tækniæfingar verður farið í sérhæfðar styrktar- og liðleikaæfingar með áherslu á hreyfifærni knattspyrnufólks í samstarfi við Crossfit XY og Football Mobility. Sú þjálfun fer fram í sal Crossfit XY sem er staðsett í húsnæðinu við hliðina.
Hvert námskeið er frá mánudegi til föstudags og full vika fyrir yngri hóp er á 28.990 kr og eldri hóp 20.990 kr.
Námskeiðið er fyrir 8-12 ára frá kl 08:30-12:30 og fyrir 13-15 ára frá kl. 13:00-15:30.
Það verður boðið upp á ávexti á æfingatíma og allir iðkendur fá bol og viðurkenningarskjal.
Námskeiðið fer fram í húsnæði Batta sem er staðsett í Dalbrekku (Auðbrekku 23), Kópavogi.



