Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 16:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Framkvæmdastjóri ÍTF: Á að sjást að þú sért á leik í Bestu deild, ekki leik í 3. deild
Spilað var í Akraneshöllinni á miðvikudag.
Spilað var í Akraneshöllinni á miðvikudag.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Birgir Jóhannsson.
Birgir Jóhannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Besta deildin.
Besta deildin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
SÝN er sjónvarpsrétthafinn af Bestu deildunum.
SÝN er sjónvarpsrétthafinn af Bestu deildunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það voru ekki allir kátir með það að leikur ÍA og KA hafi farið fram í Akraneshöllinni á miðvikudag. ELKEM völlurinn á Akranesi var ekki tilbúinn eftir veturinn en á að vera tilbúinn í næsta heimaleik Skagamanna.

Það heyrðist af því í vetur að síðasta ár hefði verið það síðasta þar sem félögin hefðu getað fengið undanþágu um að spila á völlum sem uppfylla ekki allar kröfur um velli í Bestu deildinni. Eftir samtal við framkvæmdastjóra ÍTF (Íslensks Toppfótbolta), Birgi Jóhannsson, reyndist það ekki rétt, en stefnt er að því að herða kröfurnar.

„Reglugerðin er þannig að það hafa verið undanþágur sem mótanefndin gefur. Við í ÍTF höfum verið að pressa á það og viljum að allir varavellir þurfi að uppfylla B-vallar leyfi. Ef þú ert í Bestu deildinni og skilar inn varavelli, þá þarf sá völlur að vera Bestu deildar völlur, sem er með öllum pakkanum - uppfyllir allar kröfur. En það er ekki samstaða meðal félaganna að gera þetta þannig, ekki strax," segir Birgir.

„Um leið og þú setur einhverjar reglur og ætlar ekki að gera neinar undanþágur, þá yrði t.d. Vestri að spila í borginni ef eitthvað er að vellinum á Ísafirði. Sama á Akureyri, ef vellirnir þar eru ekki í lagi þá er næsti B-völlur á höfuðborgarsvæðinu. Félögin vilja ekki missa heimaleikina sína og við skiljum það alveg."

„En við hjá ÍTF viljum að þetta sé þannig að liðin fá ekki að spila í Bestu deildinni nema búið sé að samþykkja völlinn sem Bestu deildar völl. Ég vænti þess að þessar undanþágur verði ekki veittar á næsta keppnistímabili. Þetta er ekki sú vara sem við erum að selja, sjónvarpsrétthafinn (SÝN) er mjög ósáttur, vill ekki sjá að það sé verið að spila á svona leikvöllum."

„Boltinn fór fimm sinnum upp í loftið, aðstaða fyrir sjónvarpsfólk er ekki góð, það nást ekki sömu flottu vinklarnir af vellinum, lýsingin mjög léleg og alls kyns hlutir sem Akraneshöllin uppfyllir ekki. Ég var með erlendum aðilum í gær, menn frá spiideo, við fórum á Víkingur - Stjarnan og sáum svo mörk umferðarinnar. Menn voru að furða sig á því að þetta mætti, fólk tekur eftir þessu."


ÍTF getur ekki bannað liðum að spila á ákveðnum völlum.

„KSÍ vill að félögin séu sammála um hvernig fyrirkomulagið sé. Hópurinn var tvískiptur, helmingurinn vildi hafa aðlögunartímabil, sem nú er í gangi. Við munum svo leggja til að það verði gerð reglugerðarbreyting um að þessar undanþágur verði ekki veittar nema í algjörri neyð."

„Í deildunum í kringum okkur er það þannig að ef þú getur ekki spilað á þínum heimavelli þá þarftu að spila á einhverjum öðrum alvöru velli. Íslenska landsliðið t.d. þurfti að fara með leik til Spánar (heimaleik gegn Kósovó), það var ekki hægt að fara hvert sem er. Við sjáum þetta eins með Bestu deildina, það þarf að vera alvöru aðstaða fyrir sjónvarpsrétthafann."


Var einhver hugsun hjá ÍTF að leikur ÍA gegn KA yrði spilaður annars staðar, jafnvel í Mosfellsbæ?

;,Þetta er ekki í okkar höndum, en við hjá ÍTF erum á móti því að leikur í Bestu deildinni fari fram í Akraneshöllinni eða á samskonar varavöllum. Félögin vita það alveg að þetta er ekki sú vara og ásýnd sem við erum að selja. Auðvitað skil ég að þetta sé flókið, þetta er einn leikur og það geta komið upp sérstök tilvik, en við erum að reyna útiloka svona og gera vöruna þannig að það sé alveg sama hvert þú ferð, þú getur gengið að því vísu að umgjörðin uppfylli allar kröfur. Það á að sjást að þú sért í leik í efstu deild, ekki leik í 3. deild."

Lárus Orri Sigurðsson sagði frá því í viðtali við Fótbolta.net að Skagamenn hefðu óskað eftir því að fá leiknum frestað, þeir vildu spila leikinn úti en völlurinn var ekki klár. ÍA fékk þá ósk augljóslega ekki uppfyllta.
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Innkastið - Mega skammast sín og gera það
Slapp
banner
banner
banner