Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 17:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hin hliðin - Hlynur Þórhallsson (Þróttur R.)
Lengjudeildin
Hlynur Þórhallsson.
Hlynur Þórhallsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyndinn eftir lokaprófin.
Fyndinn eftir lokaprófin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Erfiður.
Erfiður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Venni.
Venni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óþolandi á æfingum.
Óþolandi á æfingum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Gautur Harðarson.
Brynjar Gautur Harðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njörður bróðir.
Njörður bróðir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helvíti góður í fótbolta.
Helvíti góður í fótbolta.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hlynur Þórhallsson er efnilegur varnarmaður, 21 árs gamall, sem uppalinn er hjá Þrótti og hefur leikið þar allan sinn feril. ÍA reyndi í vetur að kaupa hann frá Þrótti en hann valdi að endursemja í Laugardalnum.

Hlynur, sem var valinn í U21 landsliðið í síðasta verkefni, sýnir í dag á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Hlynur Þórhallsson

Gælunafn: Bara Hlynsi eða stundum Hly

Aldur: 21 árs

Hjúskaparstaða: lausu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: 2023 gegn Ægi í æfingaleik, línudómari í fyrri og hafsent í seinni!

Uppáhalds drykkur: Collab

Uppáhalds matsölustaður: Serrano

Uppáhalds tölvuleikur: Prime fortnite er unreal. Svo er alltaf gaman að vinna Njörð Þórhalls í Fifa

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Suits eða brooklyn 99

Uppáhalds tónlistarmaður: Birnir og Drake deila þessu

Uppáhalds hlaðvarp: doc

Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: fótbolti.net

Fyndnasti Íslendingurinn: Viktor Steinars eftir lokaprófin sín

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: En ert þú laus að taka leik 12:30 á sunnudaginn fyrir utan Egilshöllina?
Þjálfa!

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: aldrei segja aldrei

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Patrick Pedersen er erfiður

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Venni og Doddi (Þórður Einarsson)

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Baldur Hannes á æfingum 100p

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Pabbi og Njö stóri bróðir

Sætasti sigurinn: 1-2 sigur í boganum í fyrra, vorum að suffera nánast allan fyrri hálfleikinn, svo sagði Venni að þetta væri drullu on í hálfleik. Brynjar Gautur með þvælu assist, og Eiki skeitinn klárar þetta í lokinn.

Mestu vonbrigðin: Tapa heima gegn Þór í fyrra um að vinna lengjudeildina, það var sárt

Uppáhalds lið í enska: United

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Myndi alltaf fá Kára kri og Eið Jack heim

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Leó Hrafn, Þróttari

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Birgir Halldórsson er helvíti fallegur

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: ómögulegt að velja á milli

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Cristiano Ronaldo, Bruno fernandes er close second

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Myndi ekki breyta neinu held ég

Uppáhalds staður á Íslandi: Laugardalurinn

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Var að spila í 2fl gegn Fylki, skoraði og kom okkur yfir þegar ég ákvað að láta þá heyra það, það var ekki nema mínútu seinna þegar þeir jöfnuðu og ég fékk 11 brjálaða Fylkismenn í andlitið. Úff

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Úrslitakeppnin í körfu er skemmtileg svo að sjálfsögðu pílan í desember!

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike og Adidas… fer eftir undirlaginu

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Eðlisfræði, það var bras

Vandræðalegasta augnablik: Vorum að fara spila gegn Hk í fyrra, næst síðasti leikur tímabilsins og vorum á fundi og ég lenti því miður í hláturskasti á miðjum fundi og það var ekkert fyndið í gangi því miður. Þakka Viktori steinars fyrir það.

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Tæki Kára kri, Viktor steinars og benóny haralds, ætli ég væri ekki í hláturskasti allan tímann

Bestur/best í klefanum og af hverju: Benóny Haraldsson er helvíti steiktur

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég væri til í að sjá Binna (Brynjar Gautur) í Love Island, hann myndi elska það

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: var einu sinni bara með eina mjaðmakúlu

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Siggi lár, helvíti góður í fótbolta, remember the name!

Hverju laugstu síðast: laug örugglega einhverju að Kolbeini Nóa

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: það eru hlaupin sem Björn sigurbjörnsson cookaði upp í vetur, hræðilegt.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi líklega spyrja Venna hvort eitthvað væri drullu on?

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Viljum sjá alla köttara fylla stúkuna í sumar! LIFI!
Slapp
banner
banner