Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 11:18
Elvar Geir Magnússon
Deildir mega hafa einn leik á tímabili erlendis
Mynd: EPA
Samkvæmt nýjum reglum munu deildakeppnir fá leyfi til að vera með einn leik á tímabilinu utan landsteinana.

FIFA þarf þó að samþykkja færsluna og allir helstu hagsmunaaðilar að vera samþykkir. Hver þjóð sem tekur á móti utanaðkomandi leikjum má að hámarki vera með fimm leiki á tímabili.

Spænska og ítalska deildin reyndu að halda leiki í Bandaríkjunum og Ástralíu á þessu tímabili en féllu frá þeim áætlunum vegna mikillar andstöðu.

Samkvæmt nýju reglunum mun FIFA geta hafnað beiðnum ef áhyggjur eru af velferð leikmanna vegna álags og langra ferðalaga.

Reglurnar hafa ekki verið staðfestar og ekki vitað hvenær þær munu taka gildi.
Slapp
banner
banner