Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 11:02
Elvar Geir Magnússon
Hákon búinn að skrifa undir langtímasamning við Brentford
Hákon við undirskriftina.
Hákon við undirskriftina.
Mynd: Brentford
Hákon Rafn Valdimarsson landsliðsmarkvörður hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við enska úrvalsdeildarfélagið Brentford. Samningurinn er til 2030 með möguleika á framlengingu um tvö ár.

Hákon, sem er 24 ára, hefur verið í hlutverki varmarkvarðar hjá Brentford og spilað í bikarkeppnunum.

„Ég er hæstánægður með að Hákon hafi gert nýjan samning. Fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir því sem á sér stað bak við tjöldin og vita ekki af mikilvægi sumra leikmanna í þessu ferðalagi. Hákon er stór hluti af uppbyggingu þessa félags og hann gerir sér grein fyrir því," segir Keith Andrews, stjóri Brentford.

„Hann er mjög vinsæll hjá félaginu og er framúrskarandi markvörður. Hann hefur sýnt það þegar hann hefur spilað á þessu tímabili."

Hákon hefur leikið tólf leiki fyrir aðallið Brentford í öllum keppnum og 21 landsleik fyrir Ísland.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
2 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner