Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 26. október 2022 15:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Binni Skúla hættur með KFA - Snýr Mikael aftur í þjálfun?
Mikael Nikulásson.
Mikael Nikulásson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Skúlason mun ekki stýra KFA á næstu leiktíð en hann er hættur með liðið.

Þetta kom fram í slúðurpakkanum íslenska sem var birtur í dag.

Rætt hefur verið við nokkra þjálfara til þess að stýra liðinu á næstu leiktíð og þar á meðal er Mikael Nikulásson, fyrrum þjálfari Njarðvíkur.

Mikael, sem er sérfræðingur í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni, segir í samtali við Fótbolta.net að hann hafi vissulega rætt við KFA en það sé langt frá því að vera frágengið og ekkert víst í þeim efnum.

Mikael þjálfaði síðast Njarðvík sumarið 2020. Undir hans stjórn endaði liðið í fjórða sæti 2. deildar. Hann hefur einnig þjálfað ÍH og Núma á sínum ferli.

KFA endaði í tíunda sæti 2. deildar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner