Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segist nota allar leiðir til þess að ná því besta úr leikmannahópnum, en liðið er að berjast fyrir því að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni.
Tottenham er í fallsæti þegar fimm leikir eru eftir og hefur liðið ekki enn unnið deildarleik á þessu ári.
De Zerbi tók við liðinu af Igor Tudor og er aðeins með eitt markmið og það er að halda liðinu uppi.
Hann segir engan leikmann eins og að hann þurfi stundum að finna ólíkar lausnir til þess að ná því besta úr leikmönnunum.
„Orð mín eru ekki nóg og reyni því ég að finna bestu lausnina með hvern einasta leikmann. Stundum mætir maður með myndband og stundum notar maður orð, rauðvín eða bjór. Ég veit það ekki.“
„Stundum er maður með myndbönd með leikgreiningu eða myndband sem sýnir hvað þeir hafa gert á ferlinum og hjá öðrum félögum eins og með Kolo Muani. Ef ég spila með Kolo Muani á hægri vængnum þá er það af því hann hefur spilað í þeirri stöðu.“
„Ef þú ferð á Youtube og þú skoðar þegar Kolo Muani var hjá Eintracht Frankfurt þá getur þú séð að hann spilaði mjög vel í þeirri stöðu og skoraði fullt af mörkum.
„Þegar ég er ekki að vinna á skrifstofunni þá fer ég og finn eitthvað sem gæti reynst mér mikilvægt til að fá meiri upplýsingar um leikmennina því við höfum engan tíma og verðum skoða allt til þess að geta haldið okkur uppi.“
„Ég nota Youtube eða WyScout til að finna bestu lausnina fyrir leikmennina, ekki fyrir mig. Í dag er 24. apríl og við höfum ekki enn unnið leik á árinu. Heldur þú að leikmenn séu að þjást? Ég er viss um það.“
„Sigur myndi gefa þeim meiri orku, sjálfstraust og jákvæðni því eru jú mennskir eftir allt,“ sagði De Zerbi.


