PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stefna eða stefnuleysi?
Kvenaboltinn
Valur fagnar marki á síðasta tímabili.
Valur fagnar marki á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helga Rut Einarsdóttir var keypt frá Breiðabliki á dögunum.
Helga Rut Einarsdóttir var keypt frá Breiðabliki á dögunum.
Mynd: Valur/Toggipop
Val er spáð sjötta sæti í sumar.
Val er spáð sjötta sæti í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er áhugavert að fylgjast með því verkefni sem er í gangi hjá kvennaliði Vals, sem og karlaliðinu líka. Stefnan er að byggja meira á ungum leikmönnum en Valur hefur fengið til sín mikinn fjölda leikmanna í kvennalið sitt í vetur.

Nýverið var Helga Rut Einarsdóttir keypt frá Breiðabliki en hún er fyrirliði U19 landsliðsins. Slúðrað hefur verið um að Valur borgi fyrir hana eina og hálfa milljón króna.

„Ef við hoppum aðeins yfir í karlaliðið þá er 16 milljónum hent í þrítugan leikmann. Það er enginn uppalinn í Val og þeir misstu sinn efnilegasta leikmann í Gróttu. Mér finnst þetta ofboðslega vandræðalegt en á sama tíma er hægt að hrósa Val fyrir það að verið er að eyða peningum í unga íslenska leikmenn," sagði Magnús Haukur Harðarson í Uppbótartímanum.

„Á sama tíma hef ég áhyggjur af ungum íslenskum leikmönnum því þær þurfa að spila. Í kvennaboltanum er 2. flokksfótbolti ekki góður, því miður er það þannig. Það er sér þáttur sem hægt er að taka seinna. Það verður mjög fróðlegt að sjá hvar þær ætla að stilla upp leikmönnum. Þær eru með fullt af leikmönnum, geta stillt upp 2-3 liðum."

„Þær held ég geta hent upp byrjunarliði þar sem er ekki leikmaður inn á vellinum sem á ekki annað hvort U17 leik, U19 leik eða A-landsleik. Þær eru með fjölda af leikmönnum sem eiga einhvers konar yngri landsleiki," sagði Arnar Páll Garðarsson.

„Þær eru með lið sem eiga klárlega að stefna hærra en sjöunda sæti en vandamálið er... eins mikið og þau vilja kalla þetta stefnu, þá held ég að þetta sé líka stefnuleysi. Þau eru að hrúga inn ungum leikmönnum og miðað við hvað maður heyrir er verið að lofa mínútum og alls konar. Þeir eru að henda öllu sem þeir geta hent út og vona að leikmenn komi. Svo lendir það allt í einu á Matta að þurfa að díla við risastóran hóp sem búið er að lofa mínútum. Það endar svo ekki vel ef þessir leikmenn fá ekki mínútur."

„Ef það kemur gremja inn í klefa þá skilar það sér mjög mikið út á völlinn," sagði Snæbjört Pálsdóttir.

Gæti Valur í einhverjum heimi sogast í fallbaráttu í Bestu deildinni í sumar?

„Já. Það er alltaf möguleiki. Ef Fanndís (Friðriksdóttir) á ekki þetta tímabil í fyrra þá hefðu þær endað neðar en í sjötta sæti. Á sama tíma gætu þær farið í bullandi toppbaráttu ef allt fellur á réttan stað og ef allar eru glaðar með sitt hlutverk. Notiði umræðuna sem orku og bensín til að afsanna allt þetta rugl sem við erum að tala um hérna," sagði Magnús Haukur.

Hægt er að horfa og hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan


Slapp
banner
banner
banner