Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísak Andri spilar ekki meira á tímabilinu
Ísak Andri Sigurgeirsson.
Ísak Andri Sigurgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak Andri Sigurgeirsson mun ekki spila meira á yfirstandandi tímabili i Danmörku en hann er þar á láni hjá Viborg.

Ísak er búinn að vera meiddur síðustu vikur og fór á dögunum í kviðslitsaðgerð. Hann má byrja að æfa aftur í júní af fullum krafti.

Ísak kom til Norrköping frá Stjörnunni árið 2023 eftir að hafa verið einn af bestu leikmönnum Bestu deildarinnar. Hann lék nokkuð vel með Norrköping áður en liðið féll úr sænsku úrvalsdeildinni. Eftir fallið færði hann sig til Viborg á láni en danska félagið er með kaupmöguleika.

Hinn 22 ára gamli Ísak Andri kom við sögu í sex leikjum með Viborg á tímabilinu.

Óvíst er með framtíðina hjá Ísak; hvort hann verði áfram í Viborg, fari aftur til Norrköping eða eitthvert annað. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er talsverður áhugi á honum í Skandinavíu.
Slapp
banner
banner