Sandra María Jessen skoraði ellefta deildarmark sitt í þýsku deildinni er Köln tapaði fyrir Hoffenheim, 6-2, í dag.
Sandra kom til Köln frá Þór/KA á síðasta ári og raðað inn mörkunum í deildinni.
Hún var eins og venjulega í byrjunarliði Köln gegn Hoffenheim, en hún minnkaði muninn í 4-2 á 50. mínútu sem var hennar ellefta mark í deildinni.
Sandra er í 7. sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar, aðeins fjórum mörkum frá Selinu Cerci, leikmanni Hoffenheim, sem gerði einmitt þrennu í dag.
Köln situr þá í 8. sæti deildarinnar með 28 stig, þrettán stigum fyrir ofan fallsæti.


