Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
   fös 25. febrúar 2011 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Leifur Garðarsson: Sumir búa bara til neikvæðar fréttir
,,Viðureignir þessara liða eru alltaf frábær skemmtun og menn fá klárlega aukinn kraft í þessum viðureignum miðað við þessarar viðureignir síðustu árin. Frábær skemmtun og ekki hægt að saka leikmenn liðanna um að leggja sig ekki fram," sagði Leifur Garðarsson þjálfari Víkings eftir 3-3 jafntefli við Leikni í Lengjubikarnum í gærkvöld.

,,Ég er frábærlega ánægður með mitt lið. Við tókum jákvætt skref. Við bættum okkur í fyrri hálfleik á móti Fjölni frá því sem verið hefur og tókum núna aftur mjög jákvætt skref og stigum upp. Við erum líka að fá reynda menn í þetta og það styrkir liðið. Það er ekkert launungarmál."

Helgi Sigurðsson er á 37. aldursári en þrátt fyrir það í fullu fjöri og skoraði öll þrjú mörk Víkings í leiknum, eitt úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.

,,Helgi skilar alltaf sínu. Það skiptir engu hvað hann er gamall. Hann verður örugglega fimmtugur í framlínunni ef þetta heldur svona áfram. En hann þarf að passa sig, hann er orðinn þetta gamall og fer að ná mér bráðum. Hann er frábær eining í okkar liði."

Aron Þrándarson skoraði mark í lok leiksins sem Víkingar voru byrjaðir að fagna sem sigurmarki þegar línuvörður lyfti flaggi sínu til marks um rangstöðu. Leifur var ekki sáttur við þann dóm.

,,Nei, ég var ekki sáttur við það. Mér sýndist þetta vera löglegt mark en hafur getum við ekki haft nein áhrif á það hvað dómararnir gera. við verðum að einbeita okkur að því sem við gerum. Við höfum klárlega verið að gera það undanfarið og bætt okkar leik. Við getum ekki verið að pæla í veðrinu eða styrknum í ljósaperunum í Egilshöll eða hvað. Við einbeitum okkur bara að því sem við getum haft áhrif á."

Nokkur umræða hefur verið um Víking undanfarna daga eftir að stjórnarmaður liðsins sendi fyrir mistök út Excel skjal með stöðumati Leifs á leikmannahópnum. Í gærkvöld vitrist létt á meðal allra.

,,Þetta ágæta mál hefur aðallega farið fram utan veggja Víkinnar og hefur ekki haft nein áhrif á okkur. Menn vinna bara faglega í fótbolta. Þó svo hjá einhverjum
félögum séu menn illa upplýstir um sína stöðu þarf að fara að halda fleiri þjálfaranámskeið held ég,"
sagði Leifur en fékk hann ekki fyrir hjartað fyrst þegar málið kom upp?

,,Auðvitað slapp þetta út. Stjórnarmaðurinn gerir þarna mistök. Stjórnarmaður sem vinnur alla daga frábært starf fyrir Víking. Þú getur ekki verið að eltast við svona endalaust, þá ertu ekki að hugsa um það sem skiptir máli sem er fótboltinn. Ég álása honum ekki einustu stund. Við ræddum bara saman og kláruðum þetta mál innan Víkings. Maður fer ekki að hengja mann sem er dag og nótt að vinna fyrir Víking, það væri fáránlegt."

,,Fjölmiðlamenn eru að vinna við að búa til fréttir og þegar það er gúrkutíð þá grípa menn einhver saklaus skjöl úr tölvukerfinu úr Hafnarfirði og búa til eitthvað. Kannski líður mönnum vel með það, sumir búa bara til neikvæðar fréttir,"
sagði Leifur, en var ekki frétt í þessu máli, það var jú boðað til krísufundar hjá félaginu?

,,Við fundum mjög reglulega í Víkinni, það er spurning hvort það sé þá alltaf krísufundur eða hvort það sé skemmtifundur," svaraði Leifur en Fótbolti.net benti honum á að formaður Víkings orðaði fundinn á laugardaginn sem krísufund.

,,Já hann er náttúrulega í viðskiptalífinu og var að reyna að þýða einhver ensk orð sem hann hafði í biblíunni sinni á borðinu í Sundahöfninni. Ég veit ekki hvort krísa var rétta orðið. En við erum vanir að ræða saman á íslensku kjarnyrtu máli og tökum hollenskuna af og til líka. Við klárum bara málin, það er langbest og að vera ekki að draga þau eitthvað út í sveit og ræða þau í einhverjum reykmettuðum bakherbergjum eins og góður maður sagði."
Slapp
banner
banner