Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
   sun 08. maí 2011 22:01
Magnús Már Einarsson
Ólafur Kristjánsson: Jökull er svekktur út í sjálfan sig
,,Mér fannst fara úrskeiðis dekkning í fyrstu tveimur mörkunum. Þegar það er hornspyrna og andstæðingurinn skorar þá er maður ekki sáttur við að það sé á þennan hátt. Síðan fór það úrskeiðis að við létum hreinlega reka okkur út af," sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks eftir 4-1 tap liðsins gegn FH í kvöld.

Jökull Elísabetarson fékk rauða spjaldið í stöðunni 2-1 um miðjan síðari hálfleik þegar hann braut af sér og fékk gult spjald og fékk síðan annað gula spjald á sama tíma fyrir kjaftbrúk. Veit Ólafur hvað Jökull sagði við Þorvald Árnason dómara?

,,Ég ákvað að fara ekkert dýpra í það að svo stöddu. Jökull er svekktur út í sjálfan sig og ég er svekktur út í tapið. Við ræðum það á morgun."

Íslandsmeistararnir eru á botninum án stiga eftir tvær umferðir en næsti leikur er gegn Grindavík á miðvikudag.

,,Við erum búnir að spila við tvo sterka andstæðinga og eigum að spila við mjög sterkt lið Grindavíkur á miðvikudaginn. Það verður að rífa sig upp í þeim leik, það er ekkert annað í boði."

,,Ég trúi ekki öðru en að við tökum það góða úr þessum fyrstu tveimur leikjum og bætum nokkrum grömmum við og sjáum hvort við getum ekki fengið þá þrjá punkta sem við erum að bíða eftir,"
sagði Ólafur að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner
banner