Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
banner
   sun 12. ágúst 2018 20:21
Egill Sigfússon
Rúnar: Sorglegt ef mark er tekið af okkur annan leikinn í röð
Rúnar var alls ekki sáttur með spilamennsku síns liðs í kvöld
Rúnar var alls ekki sáttur með spilamennsku síns liðs í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KR gerði markalaust jafntefli á heimavelli við Fjölni í kvöld í 16. umferð Pepsí-deildar karla. Rúnar Kristinsson þjálfari KR sagði liðið einfaldlega hafa spilað lélegan fótbolta í dag.

Lestu um leikinn: KR 0 -  0 Fjölnir

„Mikil vonbrigði að hafa ekki spilað betri fótboltaleik og skorað mark á heimavelli og unnið þennan leik. Við vorum bara ekki góðir í dag og leikurinn í heild sinni vonbrigði."

KR skoraði mark í fyrri hálfleik sem stóð ekki vegna þess að boltinn var farinn útaf. Rúnar segist vona að það hafi verið rétt ákvörðun því það væri gríðarlega svekkjandi að lenda í svona atviki í öðrum leiknum í röð. Í síðasta leik gegn Breiðabliki átti KR að fá mark sem dómararnir sáu ekki.

„Þeir lokuðu vel á og við spiluðum full hægt, við skorum þetta eina mark í fyrri hálfleik og erfitt er að sjá hvort boltinn var útaf eða ekki, aðstoðardómarinn var einhverjum 45 metrum frá og það er sorglegt ef það er niðurstaðan annan leikinn í röð."

Rúnar segir að markmiðið sé það sama og það hefur verið í allt sumar, ná þessu fjórða sæti og vona að það komi þeim í Evrópu.

„Það hefur verið markmiðið okkar í allt sumar, auðvitað á þeim tímapunkti þegar við vorum örlítið nær toppliðunum langaði okkur að nálgast þau meira en ég held að það sé nokkurn veginn úr sögunni núna. Við sjáum til hvort við eigum einhverja möguleika á að komast hærra en það en ef við spilum eins og í dag getum við gleymt því."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner