Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 22. nóvember 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Siggi Hlö spáir Liverpool titlinum
Siggi Hlö.
Siggi Hlö.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Útvarpsmaðurinn góðkunni Sigurður Hlöðversson er gallharður stuðningsmaður Manchester United. Siggi spáir því hins vegar að erkifjendurnir í Liverpool nái að vinna ensku úrvalsdeildina á þessu tímabili.

Smelltu hér til að hlusta á Manchester United spjall í Miðjunni

„Ég ætla að gera allt brjálað núna. Ég verð drepinn fyrir þetta, en ég held að það verði Liverpool," sagði Siggi í hlaðvarpsþættinum Miðjunni á Fótbolta.net í gær aðspurður út í það hvaða lið verður meistari.

„Ég er mjög ánægður fyrir hönd vina minna sem halda Liverpool að þeir séu komnir þarna upp. Maður er farinn að sjá í tennurnar á vinum sínum sem halda þessu liði. Þeir eru farnir að brosa núna,"

Manchester United er sjö stigum frá Meistaradeildarsæti í augnablikinu og Siggi og Jóhann Skúli voru sammála um það í þættinum að úr því sem komið er væri gott ef United myndi enda í topp fjórum.

„Eins og þetta er að spilast þá mega þeir prísa sig sæla ef þeir klára það. Ef mér væri boðið 4. sætið í dag þá myndi ég taka það," sagði Jóhann Skúli.

Smelltu hér til að hlusta á Manchester United spjall í Miðjunni
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner