Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 11. desember 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Yfirnjósnari Man Utd fylgdist með Haaland
Mynd: Getty Images
Marcel Bout, yfirnjósnari Manchester United, mætti á leik Red Bull Salzburg og Liverpool í gær.

Bout mætti á svæðið til að fylgjast með norska framherjanum Erling Braut Haaland.

Hinn 19 ára gamli Haaland hefur skorað 28 mörk í 22 leikjum með Red Bull Salzburg á þessu tímabili.

Um 40 njósnarar voru á vellinum í gær en flestir voru þeir mættir til að fylgjast með Erling Haaland.

Manchester United, Real Madrid, Barcelona, Juventus og Liverpool hafa einnig verið orðuð við Haaland.
Athugasemdir
banner
banner
banner