Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 13. maí 2003 00:00
Hafliði Breiðfjörð
VISA-bikarinn næstu þrjú árin
Í gær undirrituðu VISA Ísland og SportFive samning um VISA-bikarinn til þriggja ára og mun því bikarkeppni KSÍ í meistaraflokki karla og kvenna heita VISA-bikarinn. Til upplýsingar er rétt að geta þess að SportFive keypti þennan rétt af KSÍ fyrir árin 2002-2005. SportFive er þýskt/franskt umboðsfyrirtæki á sviði sjónvarps- og markaðsréttar og hefur starfað með KSÍ í rúman áratug, aðallega með réttindi tengd landsliðinu.

Í samningi SportFive og VISA felst meðal annars að:

merki VISA-bikarsins birtist í kringum sjónvarpssendingar.
fáni VISA-bikarsins er á lofti á öllum leikjum í keppninni.
VISA er tryggður ákveðinn metrafjöldi skilta á leikjum.
kynning á VISA-bikarnum þegar dregið er í keppninni.
glæsileg umgjörð undanúrslita- og úrslitaleikja VISA-bikarsins.



Á myndinni hér að ofan má sjá fulltrúa VISA, KSÍ og SportFive við undirritun samningsins.

Frá vinstri: Leifur Steinn Elísson, aðstoðarframkvæmdastjóri VISA Íslands, Halldór Guðbjarnarson, framkvæmdastjóri VISA Íslands, Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og Carsten Mahlmann frá SportFive.


Vinningsupphæðir
VISA-bikar karla
1. sæti 1.500.000
2. sæti 1.000.000
3. sæti 800.000
4. sæti 800.000
5. sæti 500.000
6. sæti 500.000
7. sæti 500.000
8. sæti 500.000
9. sæti 300.000
10. sæti 300.000
11. sæti 300.000
12. sæti 300.000
13. sæti 300.000
14. sæti 300.000
15. sæti 300.000
16. sæti 300.000

VISA-bikar kvenna
1. sæti 300.000
2. sæti 150.000
3. sæti 200.000
4. sæti 100.000
Slapp
banner
banner