Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   mán 08. júní 2026 07:00
Mate Dalmay
Fótbolti fyrir alla í miðnætursólinni - ReyCup Senior fer fram í Laugardalnum 19.–20. Júní
ReyCup Senior snýst ekki um að vera í toppformi - það snýst um að mæta, hreyfa sig og hafa gaman
ReyCup Senior snýst ekki um að vera í toppformi - það snýst um að mæta, hreyfa sig og hafa gaman
Mynd: Rey Cup

Dagana 19.–20. júní fyllist Laugardalurinn af fótbolta, gleði og góðum félagsskap þegar ReyCup Senior mótið fer fram. Mótið er alþjóðlegt fótboltamót fyrir karla og konur sem vilja hreyfa sig, hitta skemmtilegt fólk og njóta samverunnar í íslensku miðnætursólinni. 


Þetta er fótbolti fyrir alla, óháð aldri og getu, þar sem keppt verður í 7 manna bolta, göngubolta og fótboltahreysti. Mótið er kjörið tækifæri til að kalla saman gamla spilafélaga, skólafélaga eða vinnufélaga - hóa liðinu saman á ný og rifja upp gamla takta. Hreyfing og samvera fara saman, og fátt er hollara fyrir bæði líkama og sál en að spila bolta með góðum vinum.

„ReyCup Senior snýst ekki um að vera í toppformi - það snýst um að mæta, hreyfa sig og hafa gaman. Ég hvet alla karla, hvort sem þeir hafa spilað í mörg ár eða vilja bara rifja upp gamla takta, til að safna saman liði og skella sér með," segir Indriði Waage, sem mun stýra liði í 50+ deildinni.

„Það er svo mikill kraftur og gleði í því þegar konur koma saman á vellinum. Hér mætast öll getustig og stemningin er einstök. Ég hvet konur til að grípa tækifærið, kalla saman vinkonur eða gamla liðsfélaga og vera með," segir Herta Rós, sem stýrir Dömudeild Þróttar.

Hvort sem þú vilt keppa, ganga eða einfaldlega njóta dagsins með félögunum, þá er pláss fyrir þig á ReyCup Senior. Safnaðu liði, skráðu þig og taktu þátt í einstakri fótboltahátíð í hjarta Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar og skráningu má finna á ReyCup.is.


Slapp
banner