Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   sun 01. júní 2014 21:34
Magnús Már Einarsson
Heimir Guðjóns: Þurfum að bæta leik okkar fljótlega
Heimir fagnar sigrinum í kvöld.
Heimir fagnar sigrinum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta hafðist með herkjum. Víkingar eru með flott fótboltalið og þeir spiluðu vel. Þeir komu sterkir inn í seinni hálfleikinn en við náðum að klára þetta þrátt fyrir ekkert sérstaka spilamennsku á köflum," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 1-0 sigur liðsins á Víkingi í kvöld.

,,Við vorum með lélegar sendingar, spilðum of mikið í sama svæðinu og við þurfum að fara að bæta leik okkar fljótlega."

Heimir segir að FH liðið geti sýnt meira en það hefur gert í síðustu leikjum.

,,Mér finnst við eiga töluvert inni. Í fyrri hálfleik settum við þá undir pressu og náðum að vinna boltann á góðum stöðum þar sem stutt er í markið. Í síðari hálfleik náðum við því takmarkað og það er erfitt í fótbolta, sama hvar hann er spilaður, að byrja alltaf frá aftasta manni og ætla að spila frá aftasta manni."

,,Við vitum það að þegar liðin koma hingað þá liggja þau til baka og beita skyndisóknum. Þá verður þetta að ganga hraðar hjá okkur svo við getum opnað þessi lið. Þetta var ekki fyrsta liðið sem kom hingað og gerði þetta og ekki síðasta liðið. Við þurfum að finna betri lausnir á þessu."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner