AZ 2 - 2 Shakhtar D
0-1 Alisson ('58 )
1-1 Isak Jensen ('73 )
2-1 Matej Sin ('80 )
2-2 Luca Meirelles ('83 )
0-1 Alisson ('58 )
1-1 Isak Jensen ('73 )
2-1 Matej Sin ('80 )
2-2 Luca Meirelles ('83 )
Úkraínska félagið Shakhtar Donetsk er fyrsta liðið til að tryggja sig áfram í undanúrslit Sambandsdeildar Evrópu eftir samanlagðan 5-2 sigur á AZ.
Shakhtar hafði sannfærandi 3-0 sigur gegn AZ í fyrri leiknum sem var spilaður í Krakow í Póllandi en liðin léku á AFAS-leikvanginum í Alkmaar í kvöld.
Leikurinn var fremur flatur framan af en það færðist meira líf í hann í þeim síðari.
Brasilíski leikmaðurinn Alisson kom Shakhtar yfir snemma í síðari hálfleik en Hollendingar leyfðu sér að dreyma með því að gera tvö mörk á sjö mínútum frá Isak Jensen og Matej Sin.
Luca Meirelles eyðilagði draum AZ á 83. mínútu er hann fékk boltann inn fyrir og setti hann á milli fóta hjá Jeroen Zoet í markinu.
Þetta gerði endanlega út um vonir AZ sem er úr leik en Shakhtar að færast nær öðrum Evróputitli sínum. Árið 2009 vann Shakhtar UEFA-bikarinn í fyrsta sinn í sögunni og á nú möguleika á að bæta öðrum við safnið.


