Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 09:34
Snæbjört Pálsdóttir
„Ég get bætt mig helling innan og utan vallar"
Eimskip
Emilía Kiær segir lífið í Þýskalandi hafa hjálpað sér að þróast sem leikmaður.
Emilía Kiær segir lífið í Þýskalandi hafa hjálpað sér að þróast sem leikmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Emilía Kiær segir það forréttindi að spila með fyrirliðanum Glódísi.
Emilía Kiær segir það forréttindi að spila með fyrirliðanum Glódísi.
Mynd: RB Leipzig

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir er í góðum gír bæði með landsliðinu og félagsliði sínu RB Leipzig í Þýskalandi. Hún segir dvölina þar hafa verið krefjandi en um leið afar lærdómsríka þar sem hún heldur áfram að þróast sem leikmaður.

„Það er bara spennandi. Ég fíla allar þessar áskoranir sem ég er að mæta þar á hverjum degi. Þetta er allt öðruvísi en t.d. þegar ég var í Danmörku heima.“


Hún segir dvölina hafa hjálpað sér að þróast sem leikmaður.

„Ég get bætt mig helling innan og utan vallar þar, þannig ég er bara mjög ánægð.“

Að hennar sögn er mikilvægt að nálgast atvinnumennskuna með opnum huga.

„Gera það, prófa það og bara mæta öllum þeim áskorunum sem maður fær með opnum hug. Taka allan þann lærdóm sem maður getur til sín en svo líka að finna út úr því hvernig maður fittar inn í það nýja umhverfi.“

Í þýsku Bundesliga þarf Emilía að eiga við Glódísi sem andstæðing en í landsliðinu fær Emilía að spila með fyrirliðanum sem hún segir hafa sérstök áhrif á liðið.

„Það er bara forréttindi að fá að spila með henni. Hún stendur sig ógeðslega vel og er mjög góður leikmaður.“

„Það sem hún gefur liðinu er mjög sérstakt. Ég finn það líka vel þegar ég er með henni í landsliðinu en svo ekki með henni í liðinu heima.“


Emilía Kiær: Að við höfum ekki unnið stærra
Slapp
banner