Atli Þór Sindrason, sem var á lokahófi Þórs valinn efnilegasti leikmaður liðsins, er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið á láni til Dalvíkur/Reynis út tímabilið.
Atli er efnilegur kantmaður sem einnig getur spilað miðsvæðis. Hann er fæddur 2007 og mun auka við breiddina í sóknarlínu Dalvíkinga í 2. deildinni.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafði Völsungur í Lengjudeildinni einnig áhuga á því að fá Atla í sínar raðir.

Atli Þór er uppalinn á Blönduósi en kom í Þór í 4. flokki. Á síðasta tímabili kom hann við sögu 14 leikjum í Lengjudeildinni og skoraði eitt mark þegar Þór vann deildina.
Hann hefur verið að glíma við meiðsli en byrjaði aftur að æfa í byrjun vikunnar.