Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
banner
   fös 17. apríl 2026 09:57
Snæbjört Pálsdóttir
„Þetta er orðið bara mitt nýja heima“
Eimskip
Cecilía segir framtíð íslenska landsliðsins bjarta.
Cecilía segir framtíð íslenska landsliðsins bjarta.
Mynd: KSÍ
Cecilía Rán nýtur lífsins hjá Inter þar sem hún hefur fest sig í sessi.
Cecilía Rán nýtur lífsins hjá Inter þar sem hún hefur fest sig í sessi.
Mynd: Inter

Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir kemur inn í landsliðsverkefnið í góðum gír eftir sterka frammistöðu með Inter á Ítalíu þar sem hún hefur fest sig í sessi. Hún segir lífið þar bæði skemmtilegt og lærdómsríkt.

„Bara ótrúlega skemmtilegt, við erum náttúrulega orðnir þrír Íslendingar. Þetta er orðið bara mitt nýja heima. Ótrúlega skemmtilegt líf utan fótboltans, fótboltinn gengur vel, þannig að það gæti ekki verið betra.“


Cecilía segir ítölsku deildina hafa komið sér á óvart.

„Ítalska deildin kom mér ótrúlega mikið á óvart. Hún er sterkari en ég hélt og öll liðin eru sterkari en ég bjóst við. Þetta er frekar jöfn deild. Það geta allir unnið alla.“

Hún hefur á undanförnum árum tekið stærra hlutverk innan landsliðsins og upplifir sig nú sem hluta af reynslumeiri leikmönnum hópsins.

„Það er ótrúlega skemmtileg staða. Manni líður eins og það sé svo stutt síðan að koma inn í landsliðið en það er alveg að koma sex, sjö ár.“

Hún segir einnig spennandi að sjá yngri leikmenn stíga upp.

„Ótrúlega skemmtilegt að sjá þegar svona ungir leikmenn koma inn hversu mikið sjálfstraust þær hafa. Eins og Thelma spilaði á þriðjudaginn og maður sér bara að hún á heima hérna, stóð sig ótrúlega vel.“

Að hennar mati er framtíð liðsins björt.

„Hún er mjög björt.“


Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
Slapp
banner