Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 09:43
Snæbjört Pálsdóttir
„Ég elska að búa í Madríd“
Eimskip
Hildur Antons nýtur lífsins í Madríd þar sem hún spilar í spænsku deildinni.
Hildur Antons nýtur lífsins í Madríd þar sem hún spilar í spænsku deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hildur segir það forréttindi að hafa Glódísi sem fyrirliða.
Hildur segir það forréttindi að hafa Glódísi sem fyrirliða.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðskonan Hildur Antonsdóttir er mætt í núverandi landsliðsverkefni í góðu formi eftir að hafa fest sig í sessi með spænska liðinu Madrid CFF í efstu deild. Hún segir lífið í Madríd bæði skemmtilegt og lærdómsríkt þar sem hún lifir drauminn sem atvinnumaður í fótbolta.

„Það er æðislegt, ég elska að búa í Madríd og mæli ekkert eðlilega mikið með að koma í heimsókn til Madríd. Að búa á Spáni er geggjað og að spila fótbolta á Spáni hefur svo sem alltaf verið draumurinn minn.“


Hún segir daglegt líf einfalt en gott.

„Vakna og fara á æfingu náttúrlega. Klára það um eftirmiðdaginn, svo bara fer ég heim og slaka á.“

Hún segir spænska deildin setja miklar kröfur á leikmenn.

„Sterk lið og sterkir leikmenn. Þetta eru flest allt hraðir og snöggir leikmenn, þannig varnarlega séð þá þarf ég að vera mjög mikið á tánum þar.“

Að hennar sögn hefur það hjálpað henni í landsliðinu.

„Svo aftur á móti hefur maður líka minni tíma á boltann þar, þannig þegar maður er að halda í boltann þá er maður vanari því en ekki.“

Í landsliðinu fær hún að spila með fyrirliðanum Glódísi sem hún ber mikla virðingu fyrir.

„Það er bara geggjað og bara algjör forréttindi að hafa hana í liðinu okkar. Getur ekki fundið betri fyrirliða held ég.“

Hún vonast til að sjá hana lengi áfram í landsliðinu.

„Ég vona það bara fyrir hönd Íslands sko.“


Hildur Antons: Við þurfum að vera leiðinlegar
Slapp
banner
banner