Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   fös 17. apríl 2026 18:41
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Töpuðu öðrum leiknum í röð í fyrsta sinn í fimm mánuði
Heimasigur Sassuolo á Como var sá fyrsti í sögu félagsins
Heimasigur Sassuolo á Como var sá fyrsti í sögu félagsins
Mynd: EPA
Sassuolo 2 - 1 Como
1-0 Cristian Volpato ('42 )
2-0 M'Bala Nzola ('44 )
2-1 Nico Paz ('45 )

Cesc Fabregas og lærisveinar hans í Como töpuðu öðrum deildarleiknum í röð er það lá fyrir Sassuolo, 2-1, í Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Como-menn komu sér í klaufalegar aðstæður á 42. mínútu leiksins er þeir áttu hornspyrnu sem var hreinsuð frá. Í kjölfarið keyrðu heimamenn upp í hraða skyndisókn. M'Bala Nzola átti ekki nógu fasta sendingu í gegn á Cristian Volpato sem náði þó til boltans og vippaði honum yfir markvörð Como og í netið.

Sassuolo tvöfaldaði forystuna tveimur mínútum síðar er NZola stakk sér inn fyrir vinstra megin og setti boltann af öryggi í markið. Fyrsta deildarmark hans á tímabilinu.

Áður en hálfleikurinn var úti minnkaði argentínski landsliðsmaðurinn Nico Paz muninn með lúmskum skalla úr teignum sem fór hátt upp í loftið og efst í vinstra hornið.

Líflína fyrir Como sem hélt meira og minna í boltann í þeim síðari, en náði að skapa sér fá færi. Paz komst næst því er hann lyfti boltanum yfir Stefano Turati í markinu, en markvörðurinn var fljótur að hlaupa til baka og bjargaði í tæka tíð.

Jöfnunarmarkið kom ekki og annað deildartap Como í röð staðreynd, en það hefur ekki gerst síðan í desember. Pressan farin að segja til sín hjá Como en liðið er 5. sæti með 58 stig, tveimur stigum frá Meistaradeildarsæti. Sassuolo er í 9. sæti með 45 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 36 27 4 5 85 31 +54 85
2 Napoli 35 21 7 7 52 33 +19 70
3 Juventus 36 19 11 6 59 30 +29 68
4 Milan 35 19 10 6 48 29 +19 67
5 Roma 35 20 4 11 52 29 +23 64
6 Como 36 17 12 7 59 28 +31 63
7 Atalanta 35 14 13 8 47 32 +15 55
8 Lazio 36 13 12 11 39 37 +2 51
9 Udinese 36 14 8 14 45 46 -1 50
10 Bologna 35 14 7 14 42 41 +1 49
11 Sassuolo 36 14 7 15 44 46 -2 49
12 Torino 36 12 8 16 41 59 -18 44
13 Parma 35 10 12 13 25 42 -17 42
14 Genoa 35 10 10 15 40 48 -8 40
15 Fiorentina 35 8 13 14 38 49 -11 37
16 Cagliari 36 9 10 17 36 51 -15 37
17 Lecce 36 8 8 20 24 48 -24 32
18 Cremonese 35 6 10 19 27 53 -26 28
19 Verona 36 3 12 21 24 57 -33 21
20 Pisa 35 2 12 21 25 63 -38 18
Slapp
banner
banner