Liverpool hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem meiðsli franska sóknarmannsins Hugo Ekitike eru staðfest.
Ekitike sleit hásin eins og talið var og því ljóst að hann spilar ekki meira á timabilinu og mun að auki missa af HM í sumar.
Ekitike sleit hásin eins og talið var og því ljóst að hann spilar ekki meira á timabilinu og mun að auki missa af HM í sumar.
Ekitike meiddist illa þegar enginn leikmaður var í kringum hann í tapi Liverpool gegn PSG í Meistaradeildinni á Anfield í vikunni.
Í september lék hann sinn fyrsta landsleik fyrir Frakkland og var búist við því að hann yrði í hópnum hjá Didier Deschamps í sumar.
Liverpool FC can confirm Hugo Ekitike has sustained a serious Achilles injury.
— Liverpool FC (@LFC) April 16, 2026

