Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 13:29
Elvar Geir Magnússon
Carrick: Ég er enn á sömu skoðun
Heaven hlakkar til leiksins.
Heaven hlakkar til leiksins.
Mynd: EPA
Michael Carrick.
Michael Carrick.
Mynd: EPA
Miðverðirnir Harry Maguire og Lisandro Martínez verða báðir í banni hjá Manchester United þegar liðið heimsækir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Um er að ræða gríðarlega mikilvægan leik fyrir bæði lið sem berjast um Meistaradeildarsæti.

Maguire fékk aukaleik í bann fyrir að rífa kjaft við fjórða dómarann eftir að hafa fengið rautt gegn Bournemouth.

„Það er ekki mikið sem við geyum sagt. Þetta eru mikil vonbrigði en við þurfum að horfa fram veginn," segir Michael Carrick stjóri Manchester United.

Martínez fékk rautt fyrir að toga í hár Dominic Calvert-Lewin í tapinu gegn Leeds í vikunni en eftir leik hneykslaðist Carrick á þeirri ákvörðun dómarans.

„Við erum ekki sammála þeirri ákvörðun. Ég var skýr eftir leik hvað varðar mína skoðun og skoðun mín hefur ekki breyst."

Heaven hlakkar til leiksins
Líklegt er talið að hinn 19 ára gamli Ayden Heaven muni byrja í hjarta varnarinnar hjá United á morgun.

„Ayden er á góðum stað. Hann er ungur og er að þróast. Hann er að æfa mjög vel, hlustar og tekur framförum. Hann er á undan áætlun þegar horft er á leikjafjölda. Hann hlakkar til leiksins, það er klárt," segir Carrick.

Líklegt er að United verði með ansi ungt miðvarðapar í leiknum og Leny Yoro leiki við hlið Heaven. Carrick var spurður á fréttamannafundi hvort þeir væru framtíðarmiðvarðapar United?

„Þegar kemur að því að spá í framtíðina þarf maður að fara varlega. Við erum í skýjunum með að hafa þá báða. Framtíðin er framtíðin og við gefum þeim tækifæri til að halda áfram að þróast. Þeir eru báðir á góðum stað."

Hvað varðar stöðuna á leikmannahópi United þá er varnarmaðurinn Patrick Dorgu að nálgast endurkomu en er ekki farinn að æfa að nýju. Kobbie Mainoo gæti tekið þátt á morgun en það á eftir að koma í ljós.
Slapp
banner
banner
banner