Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Íhuga að selja Havertz og Jesus til að fjármagna kaup á Alvarez
Arsenal gæti losað sig við Havertz
Arsenal gæti losað sig við Havertz
Mynd: EPA
Arsenal er byrjað að skoða leikmannamarkaðinn fyrir sumarið og er félagið að skoða þann möguleika að losa sig við tvo framherja til að fá inn Julian Alvarez frá Atlético Madríd.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vill styrkja framlínuna og er Alvarez sagður efstur á óskalistanum.

Hann er verðmetinn á rúmar 100 milljónir punda en til að fjármagna kaup á honum er Arsenal að íhuga að losa sig við Kai Havertz og Gabriel Jesus.

CaughtOffside segir Arsenal vera að undirbúa stóran sumarglugga. Það gæti fengið dágóða summu fyrir Havertz og Jesus, og í leiðinni lækkað launakostnaðinn verulega enda eru þeir tveir með launahæstu leikmönnum félagsins.

Alvarez hefur ekki útilokað þann möguleika að hann fari frá Atlético í sumar og snúi aftur í ensku úrvalsdeildina, en hann þekkir Arteta vel eftir að hafa unnið með honum hjá Man City.

Arsenal verður ekki eina félagið í baráttunni um Alvarez, en Barcelona er einnig sagt áhugasamt um framherjann sem hefur skorað 18 mörk í 46 leikjum í öllum keppnum á þessari leiktíð.
Slapp
banner