Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 20:48
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Titillinn í augsýn hjá Inter
Inter færist nær titlinum
Inter færist nær titlinum
Mynd: EPA
Inter 3 - 0 Cagliari
1-0 Marcus Thuram ('52 )
2-0 Nicolo Barella ('56 )
3-0 Piotr Zielinski ('90 )

Inter er skrefi nær því að fagna 21. deildarmeistaratitlinum eftir að hafa unnið 3-0 sigur á Cagliari í 33. umferð Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik settu heimamenn í Inter í fimmta gír og skoruðu þrjú.

Marcus Thuram skoraði á 52. mínútu eftir laglega sendingu frá Federico Dimarco og bætti Nicolo Barella við öðru með hörkuskoti aðeins fjórum mínútum síðar.

Pólski miðjumaðurinn Piotr Zielinski setti kirsuberið á kökuna með marki undir lok leiks með stórkostlegu marki. Þetta er þriðji sigur liðsins í röð og er Inter nú með 78 stig á toppnum, tólf stigum meira en Napoli sem er í öðru sæti á meðan Cagliari er í 16. sæti með 33 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Napoli 32 20 6 6 48 31 +17 66
3 Milan 32 18 9 5 47 27 +20 63
4 Juventus 32 17 9 6 55 29 +26 60
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 32 18 3 11 45 28 +17 57
7 Atalanta 32 14 11 7 44 28 +16 53
8 Bologna 32 14 6 12 42 37 +5 48
9 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
10 Lazio 32 11 11 10 32 30 +2 44
11 Udinese 32 12 7 13 38 42 -4 43
12 Torino 32 11 6 15 37 54 -17 39
13 Genoa 32 9 9 14 38 45 -7 36
14 Parma 32 8 12 12 23 40 -17 36
15 Fiorentina 32 8 11 13 37 44 -7 35
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 32 6 9 17 26 47 -21 27
18 Lecce 32 7 6 19 21 45 -24 27
19 Verona 32 3 9 20 23 55 -32 18
20 Pisa 32 2 12 18 23 58 -35 18
Slapp
banner