„Tímabilið leggst vel í okkur og mikil tilhlökkun," segir Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur, um komandi tímabil í Lengjudeildinni.
Grindvíkingum er spáð sjöunda sæti deildarinnar af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar. „Við erum búnir að æfa vel og spila marga æfingaleiki þannig að við ætlum að koma vel undirbúnir," segir Ray og bætir við:
Grindvíkingum er spáð sjöunda sæti deildarinnar af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar. „Við erum búnir að æfa vel og spila marga æfingaleiki þannig að við ætlum að koma vel undirbúnir," segir Ray og bætir við:
„Já, spáin kemur aðeins á óvart. Hélt að okkur yrði spáð neðar því það var mikið ritað og talað um neikvæða hluti sem tengdust liðinu í vetur sem var skrítið að fylgjast með."
Mitt heimili
Ray sneri heim og tók við Grindavík í vetur. Hann spilaði með Grindavik frá 1998 til 2012 við góðan orðstír en tekur núna við stjórnartaumunum hjá liðinu.
„Grindavík er náttúrulega mitt heimili og frábært að vera kominn aftur," segir hann.
„Vonandi náum við að endurvekja liðið eins og það var áður fyrr, þegar stuðningurinn var mikill og fólk hlakkaði til að mæta á völlinn."
Hann segir að það hafi gengið ágætlega í vetur.
„Það hefur gengið ágætlega. Það eru miklar framfarir í hópnum og menn meðvitaðir um gildi félagsins og að félagið gengur fyrir. Þó að úrslitin hafi oftast ekki verið okkur í hag þá hefur liðið náð fram það sem við þurfum til að ná árangri."
Erum að mótast á réttan veg
Grindavík var með yfirlýsingu í vetur þar sem félagið náði í Damir Muminovic, einn stærsta bitann á markaðnum.
„Við erum mjög ánægðir með strákana sem við fengum í vetur og þeir hafa hægt og bítandi verið virkari og virkari fyrir liðið og verða flottir í sumar," sagði Ray. „Strákarnir sem voru fyrir hafa líka tekið miklum framförum og eru góðir. Við erum að mótast á réttan veg."
Grindavík spilað við Keflavík á dögunum í Mjólkurbikarnum og tókst að vinna þar í vítaspyrnuekppni.
„Við vorum klárir í þetta verkefni og hlutirnir gengu vel. Ég var virkilega ánægður hversu þéttir og skipulagðir við vorum og að leikmennir voru tilbúnir að berjast fyrir hvorn annan. Samstaðan var mjög góð."
Úrslitin ráðist ekki fyrr en í síðustu umferðunum
Ray sér fram á að Lengjudeildin verði mjög sterk og spennandi í sumar.
„Ég held að deildin verði mjög sterk. Mér finnst eins og hefur verið í vetur að það verði 8-9 lið sem munu berjast um efstu fimm sætin og að úrslitin ráðast ekki fyrr en í síðustu umferðunum."
„Okkar markmið er fyrst og fremst að halda okkur uppi. Ef við náum stöðugleika í okkar leik og náum að tengja góðu leikinna saman þá getum við kannski farið að endurskipuleggja okkur. En þangað til, tökum við bara einn leik í einu og við sjáum hvert það leiðir okkur."
Eitthvað sem þú vilt bæta við að lokum?
„Ég vona að það verði stemning fyrir því að mæta á völlinn í sumar og styðja við baki á okkur. Þá sérstaklega þegar við spilum heima í Grindavík," sagði Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur.

