Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 22:23
Brynjar Ingi Erluson
Tileinkaði Anderson markið - „Enginn á þetta skilið“
Morgan Gibbs-White
Morgan Gibbs-White
Mynd: EPA
Morgan Gibbs-White, fyrirliði Nottingham Forest, tileinkaði samherja sínum, Elliot Anderson, sigurmarkið gegn Porto í Evrópudeildinni í kvöld, en það kom liðinu áfram í undanúrslit keppninnar.

Forest tilkynnti fyrir leikinn að Elliot Anderson, einn af bestu mönnum liðsins, yrði ekki með í leiknum þar sem hann er að syrgja móður sína.

Þegar Gibbs-White skoraði sigurmarkið ákvað hann og félagar hans að tileinka Anderson markið með því að lyfta treyju hans fyrir framan stuðningsmenn Forest.

„Þetta var mjög tilfinningaríkt kvöld og ótrúlega leiðinlegt. Hann er frábær strákur og það verðskuldar enginn að upplifa þetta, en við munum allir styðja við bakið á honum,“ sagði Gibbs-White.

Hann fór aðeins yfir leikinn og sagði þetta vera eitt besta kvöld lífs síns. Stuðningsmenn eru farnir að láta sig dreyma um að spila úrslitaleikinn í Istanbúl, en fyrst þarf liðið að fara í gegnum Aston Villa.

„Þeir voru byrjaðir að syngja þetta fyrir fjórum leikjum síðan. Væntingar þeirra eru háar og þar erum við samsíða. Næst mætum við Aston Villa, en við munum bara tækla það þegar að því kemur því fyrst þurfum við að einbeita okkur að næsta leik í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði hann enn fremur.

Undanúrslitaleikirnir fara fram 30. apríl og 7. maí, en sigurvegarinn mætir annað hvort Braga eða Freiburg
Slapp
banner